Notendaskilmálar

Útgáfa 0.1 · Síðast uppfært 16. október 2026

Drög. Þetta skjal er í vinnslu, hefur ekki verið yfirfarið af lögmanni og hefur ekki tekið gildi. Atriði merkt með rauðu vantar enn.

1. Um Tutor og þessa skilmála

Tutor er vefsvæði sem hjálpar háskólanemum að finna einkakennara fyrir námskeið í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík og eiga samskipti við þá. Tutor er rekið af [Rekstraraðili – nafn, sjá upplýsingaskyldu] („Tutor“, „við“ eða „okkur“).

Þessir skilmálar gilda um alla notkun Tutor. Með því að stofna aðgang staðfestir þú að þú hafir lesið skilmálana og samþykkir þá. Ef þú samþykkir þá ekki máttu ekki stofna aðgang. Í persónuverndarstefnu okkar kemur fram hvernig við förum með persónuupplýsingar.

Ekkert í þessum skilmálum takmarkar réttindi sem þú átt samkvæmt ófrávíkjanlegum lögum, til dæmis sem neytandi eða samkvæmt persónuverndarlögum.

2. Skilgreiningar

  • Notandi: hver sá sem stofnar aðgang að Tutor.
  • Kennari: notandi sem býður einkakennslu og hefur fengið kennaraprófíl sinn birtan.
  • Nemandi: notandi sem leitar að kennslu eða hefur samband við kennara.
  • Tilboð: tillaga að kennslu sem kennari sendir nemanda í samtali á Tutor.
  • Samkomulag: tilboð sem nemandi hefur samþykkt.
  • Efni notenda: allt sem notendur setja inn, svo sem prófílar, myndir, skilaboð, tilboð, umsagnir, tilkynningar og ábendingar.

3. Aldurstakmark

Tutor er eingöngu ætlað einstaklingum sem eru 18 ára eða eldri. Með því að stofna aðgang staðfestir þú að þú hafir náð 18 ára aldri. Við biðjum ekki um fæðingardag eða kennitölu til að staðfesta aldur.

Ef við höfum ástæðu til að ætla að notandi sé yngri en 18 ára getum við lokað aðgangi hans og eytt upplýsingum um hann í samræmi við persónuverndarstefnu okkar.

4. Hlutverk Tutor: milligönguvettvangur

Tutor útvegar eingöngu tæknilausn sem hjálpar sjálfstæðum nemendum og kennurum að finna hver annan, eiga samskipti, skiptast á tilboðum og skrá eigið samkomulag. Þetta þýðir meðal annars eftirfarandi:

  1. Tutor er ekki aðili að samningum milli nemenda og kennara. Samþykkt tilboð er samkomulag milli nemandans og kennarans eingöngu, ekki samningur við Tutor.
  2. Kennarar eru sjálfstæðir þjónustuveitendur. Þeir eru hvorki starfsmenn, verktakar, umboðsmenn né fulltrúar Tutor og geta ekki skuldbundið Tutor.
  3. Tutor veitir ekki kennslu og hvorki skipuleggur, hefur eftirlit með né ábyrgist kennslu sem samið er um.
  4. Tutor ákveður ekki skilmála kennslunnar. Verð, tímasetningar, afbókun, endurgreiðslur, greiðslutilhögun, kennsluaðferðir og önnur kjör ákveða nemandi og kennari eingöngu sín á milli. Verð sem kennari gefur upp á prófíl sínum er hans eigin viðmið.
  5. Greiðslur fara ekki í gegnum Tutor. Tutor tekur ekki við greiðslum og innheimtir hvorki gjöld né þóknun. Ef það breytist munum við tilkynna það fyrir fram og uppfæra þessa skilmála, sbr. 18. gr.
  6. Samþykkt prófíls er ekki trygging. Áður en kennaraprófíll birtist fer stjórnandi yfir hann til að kanna hvort hann samræmist reglum Tutor, til dæmis hvort nauðsynlegar upplýsingar og viðeigandi mynd fylgi. Við staðfestum hvorki auðkenni, menntun, hæfni, reynslu né feril kennara og ábyrgjumst ekki áreiðanleika þeirra eða frammistöðu. Netföng eru staðfest með hlekk, en símanúmer eru ekki staðfest.
  7. Ágreiningur um kennsluna, svo sem um greiðslur, endurgreiðslur, afbókanir, mætingu eða gæði kennslu, er fyrst og fremst mál nemandans og kennarans.
  8. Staða kennara. Tutor safnar sem stendur ekki upplýsingum um hvort kennari býður kennslu í atvinnuskyni. Ef kennari er ekki atvinnurekandi gilda reglur neytendaréttar almennt ekki um samning þinn við hann.

Röðun kennara. Á forsíðu og í leitarniðurstöðum birtast samþykktir kennarar sem kenna viðkomandi námskeið, þeir sem síðast voru samþykktir fyrstir. Enginn greiðir fyrir betri stöðu og einkunnir hafa ekki áhrif á röðina.

5. Aðgangur og öryggi

  • Þú skalt gefa réttar upplýsingar um þig og halda þeim réttum.
  • Hver einstaklingur má aðeins hafa einn aðgang og aðganginn má ekki framselja.
  • Þú berð ábyrgð á að halda lykilorði þínu leyndu og á allri notkun aðgangsins. Láttu okkur strax vita ef þig grunar að einhver annar hafi komist inn á hann.

6. Sérstakar skyldur kennara

  • Upplýsingar á prófíl, svo sem um nám, reynslu og námskeið, skulu vera sannar og ekki villandi. Mynd á kennaraprófíl skal vera af þér.
  • Það er á þína ábyrgð að kennsla þín sé í samræmi við lög, þar á meðal að standa skil á sköttum og öðrum opinberum gjöldum vegna tekna af kennslu.
  • Stjórnandi fer yfir prófíl áður en hann birtist og yfir breytingar áður en þær birtast. Á meðan breyting bíður yfirferðar er eldri samþykkta útgáfan áfram sýnileg. Við getum hafnað prófíl eða breytingu og þá sérðu ástæðuna.
  • Kennurum er óheimilt að bjóða að leysa verkefni, ritgerðir eða próf sem nemandi á að vinna sjálfstætt og gilda til einkunnar, og nemendum er óheimilt að óska eftir slíku.

7. Tilboð og samkomulag

Tilboð á Tutor virka þannig:

  • Kennari getur sent tilboð í samtali við nemanda. Í tilboði kemur fram lýsing, heildarverð, tímalengd, kennsluform og greiðslutilhögun, og eftir atvikum upphafstími og aðrir skilmálar.
  • Aðeins eitt tilboð getur beðið svars í hverju samtali. Nýtt tilboð kemur í stað eldra tilboðs sem ekki hefur verið svarað.
  • Nemandi getur samþykkt eða hafnað tilboði. Samþykkt tilboð er læst: hvorki nemandi, kennari né Tutor getur breytt því. Breyting á samkomulagi krefst nýs tilboðs.
  • Á Tutor er ekki hægt að afturkalla tilboð eða fella niður samþykkt samkomulag. Um afbókanir, vanefndir og endurgreiðslur fer eftir því sem aðilar sömdu um og eftir lögum.

Tutor geymir skráningu tilboða og svara við þeim, sbr. persónuverndarstefnu. Skráningin er til hagræðis fyrir aðila en Tutor ábyrgist ekki efndir samkomulagsins og hefur ekki milligöngu um að framfylgja því.

8. Skilaboð

  • Skilaboð á Tutor eru aðeins sýnileg þátttakendum samtalsins. Notendur geta hvorki breytt né eytt sendum skilaboðum.
  • Til að hindra misnotkun getur hver notandi hafið að hámarki 10 ný samtöl á dag og sent að hámarki 60 skilaboð á klukkustund.
  • Rekstraraðili Tutor hefur tæknilegan aðgang að gagnagrunninum, þar með talið skilaboðum. Við skoðum ekki skilaboð að jafnaði, heldur aðeins þegar það er nauðsynlegt vegna tilkynningar um brot, öryggis, gruns um svik eða misnotkun, beiðni þinnar eða lagaskyldu.

9. Umsagnir

  • Nemandi getur skrifað umsögn um kennara ef hann hefur sent kennaranum að minnsta kosti ein skilaboð á Tutor. Ekki er krafist þess að kennsla hafi farið fram og Tutor kannar ekki hvort svo hafi verið.
  • Umsögn samanstendur af 1–5 stjörnum og texta. Hver nemandi getur skrifað eina umsögn um hvern kennara og breytt henni síðar. Með umsögn birtist fornafn höfundar og dagsetning. Hver notandi getur skrifað að hámarki 5 nýjar umsagnir á dag.
  • Umsögn skal byggja á eigin reynslu, vera heiðarleg og laus við persónuupplýsingar um aðra, móðganir og hagsmunaárekstra. Óheimilt er að skrifa umsögn um sjálfan sig, keppinaut eða fyrir hönd annarra.
  • Tutor ábyrgist ekki að umsagnir eða upplýsingar sem kennarar gefa um sig séu réttar.

10. Reglur um efni og hegðun

Þú berð ábyrgð á efni sem þú setur inn og á því að það sé rétt og löglegt. Óheimilt er meðal annars að:

  • gefa rangar eða villandi upplýsingar eða villa á sér heimildir;
  • áreita, hóta, mismuna eða beita aðra ofbeldi, eða senda efni sem er kynferðislegt, hatursfullt eða ólöglegt á annan hátt;
  • senda ruslpóst, auglýsingar eða keðjubréf;
  • safna upplýsingum um aðra notendur eða nota þær í öðrum tilgangi en samskiptum um kennslu;
  • sniðganga takmarkanir eða öryggisráðstafanir, eða sækja efni af Tutor með sjálfvirkum hætti;
  • brjóta gegn hugverkaréttindum eða friðhelgi annarra.

11. Tilkynningar og viðbrögð Tutor

Umsagnir. Innskráðir notendur geta tilkynnt umsögn og þurfa að tilgreina ástæðu. Hver notandi getur tilkynnt hverja umsögn einu sinni og sent að hámarki 10 tilkynningar á dag. Stjórnandi fer yfir tilkynninguna og getur fjarlægt umsögnina, hafnað tilkynningunni eða svipt höfundinn rétti til að skrifa umsagnir, en þá eru allar umsagnir hans fjarlægðar. Fjarlægðar umsagnir hverfa af vefnum en eru varðveittar samkvæmt persónuverndarstefnu.

Annað efni og hegðun. Ef þú telur að efni sé ólöglegt eða brjóti gegn þessum skilmálum geturðu látið okkur vita á síðunni Ábendingar og aðstoð eða á netfanginu [Netfang Tutor – SKYLDA FYRIR OPNUN].

Við förum yfir tilkynningar og bregðumst við án ástæðulausrar tafar þegar við fáum vitneskju um ólöglegt efni. Við getum gripið til eftirfarandi ráðstafana ef efni eða hegðun brýtur gegn lögum eða þessum skilmálum, eða ef grunur er um svik, áreitni, misnotkun eða öryggisógn:

  • fjarlægt eða falið efni;
  • hafnað prófíl eða breytingu á prófíl;
  • svipt notanda rétti til að skrifa umsagnir;
  • lokað aðgangi tímabundið eða varanlega.

Ráðstafanir skulu vera í samræmi við tilefnið. Þegar það er hægt og lög eða öryggissjónarmið standa því ekki í vegi látum við notanda vita af ákvörðuninni og ástæðu hennar. Þú getur óskað eftir að við endurskoðum ákvörðun með því að hafa samband við okkur.

12. Hugverkaréttindi og efni notenda

Hugbúnaður Tutor, hönnun, auðkenni og gagnagrunnur vefsins, þar á meðal samantektir og greiningar sem Tutor vinnur úr honum, eru eign rekstraraðila Tutor eða leyfisveitenda hans og njóta verndar samkvæmt lögum, þar á meðal höfundalögum.

Þú átt áfram það efni sem þú setur inn. Þú veitir Tutor almennt, endurgjaldslaust leyfi til að hýsa, geyma, afrita, birta og aðlaga efnið (til dæmis minnka myndir) að því marki sem þarf til að reka og bæta Tutor og varðveita gögn samkvæmt persónuverndarstefnu. Leyfið fellur niður þegar efninu er eytt, nema að því marki sem varðveisla er heimil samkvæmt persónuverndarstefnu, til dæmis vegna skilaboða sem aðrir notendur hafa fengið.

Hugmyndir og ábendingar sem þú sendir okkur megum við nota án endurgjalds eða skuldbindingar.

13. Þjónustan og breytingar á henni

Tutor er gjaldfrjálst og í þróun. Þjónustan er veitt eins og hún er hverju sinni. Við getum bætt við, breytt eða hætt einstökum þáttum hennar og ábyrgjumst ekki að hún sé alltaf aðgengileg eða villulaus. Ef við hættum rekstri Tutor reynum við að tilkynna það með hæfilegum fyrirvara.

14. Takmörkun ábyrgðar

Að því marki sem lög leyfa ber Tutor ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til:

  • háttsemi notenda, hvort sem er á Tutor eða utan vefsins;
  • rangra eða villandi upplýsinga frá notendum, þar á meðal í prófílum, skilaboðum, tilboðum og umsögnum;
  • kennslu eða samkomulags milli notenda, svo sem vegna gæða kennslu, árangurs, forfalla, afbókana, vanefnda, greiðslufalls eða endurgreiðslna;
  • ágreinings milli notenda;
  • truflana, villna eða gagnataps í þjónustunni, eða þjónustu þriðju aðila sem Tutor nýtir;
  • óbeins tjóns, svo sem tapaðs hagnaðar eða tekna.

Að því marki sem lög leyfa takmarkast heildarábyrgð Tutor gagnvart hverjum notanda við 20.000 kr., enda er þjónustan gjaldfrjáls.

Ekkert í skilmálum þessum takmarkar ábyrgð Tutor á tjóni sem rekja má til ásetnings eða stórfellds gáleysis Tutor, né ábyrgð sem ekki má takmarka samkvæmt ófrávíkjanlegum lögum, þar á meðal persónuverndarlögum og lögum um neytendavernd.

15. Skaðleysi

Ef þú brýtur gegn þessum skilmálum eða lögum á saknæman hátt skaltu halda Tutor skaðlausu af kröfum þriðju aðila sem af því leiða, ásamt hæfilegum kostnaði við að verjast þeim. Þetta gildir aðeins að því marki sem tjónið stafar af háttsemi þinni og eingöngu að því marki sem lög leyfa.

16. Öryggi í samskiptum og á fundum

Tutor kannar ekki bakgrunn notenda. Sýndu aðgát í samskiptum við fólk sem þú þekkir ekki, til dæmis með því að hittast á opinberum stað, og deildu ekki viðkvæmum upplýsingum eða greiðsluupplýsingum fyrr en þú treystir viðtakandanum. Hafðu samband við lögreglu ef þú telur þig í hættu.

17. Lokun aðgangs

Þú getur óskað eftir því að aðgangi þínum verði lokað og honum eytt með því að hafa samband við okkur á netfanginu [Netfang Tutor – SKYLDA FYRIR OPNUN]. Í persónuverndarstefnu kemur fram hvaða upplýsingar kunna að vera varðveittar áfram og hvers vegna. Við getum lokað aðgangi samkvæmt 11. gr.

18. Breytingar á skilmálum

Við getum breytt þessum skilmálum. Verulegar breytingar tilkynnum við með að minnsta kosti 15 daga fyrirvara, með tölvupósti eða á vefnum, nema breytingin sé nauðsynleg vegna lagaskyldu eða öryggis. Ef þú samþykkir ekki breytingu geturðu hætt notkun og óskað eftir lokun aðgangs áður en hún tekur gildi. Ef þú notar Tutor áfram eftir að breyting tekur gildi telst þú hafa samþykkt hana.

19. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Ágreiningsmál vegna þeirra skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, nema ófrávíkjanlegar reglur kveði á um annað varnarþing.

20. Ýmis ákvæði

  • Ef ákvæði í skilmálum þessum telst ógilt halda önnur ákvæði gildi sínu.
  • Þótt við beitum ekki rétti samkvæmt skilmálunum í einstöku tilviki felst ekki í því afsal þess réttar.
  • Tutor getur framselt réttindi og skyldur samkvæmt skilmálum þessum til nýs rekstraraðila, til dæmis félags sem stofnað er um rekstur Tutor, enda verði réttindi þín ekki skert. Við tilkynnum slíkt framsal.

21. Hafa samband

Netfang: [Netfang Tutor – SKYLDA FYRIR OPNUN]. Einnig má senda okkur skilaboð á síðunni Ábendingar og aðstoð.

Rekstraraðili: [Nafn rekstraraðila], heimilisfang: [Heimilisfang], kennitala: [Kennitala].